1. |
||||
Ég heyri myrkrið hvísla kalla
finn mig knúna til að falla
rigna yfir veröld alla
leysast upp.
Tómið opnast upp á gátt
myrkrið tekur allan mátt.
Ég er knúin að falla.
Veruleiki visnar
moldin hvíslar komdu heim.
Ég er knúin til að falla
Þú ert knúin til að falla.
|
||||
2. |
||||
Hún grætur milli húsasunda
tárin renna milli múrsteina.
Hún vonar að vorið vakni
sorgin upp rakni.
Afhverju er alltaf kalt?
Afhverju er ljósið svart?
|
||||
3. |
||||
Ljósið blindar lýgur
Myrkrið sýnir sannleika sem týnist
sýnist skaðlegur en síðan munt þú skilja.
Ég er fín kona en klædd í kókaín,
vín vona vorið komi brátt
bráðum verði hlýtt
eitthvað nýtt
Ég er sú sem alltaf þagði
ég er sú sem aldrei sagði
ég leita í harðari efni
í vöku og svefni.
Sýnir í vöku og svefni.
|
||||
4. |
Glimmer & aska
05:17
|
|||
Glimmer og aska.
Tóm bjórflaska
Drottningadraumórar.
Dansandi taumlausar.
Grámyglaðir lokkar
götóttir sokkar.
Þið eruð föst í svörtum hring
spegilmynd og sjónhverfing.
Baða mig í gleri
enginn sér mig.
Í herbergi fullu
af handklæðum og lökum
af mínum eigin sökum
og heilans ragnarrökum.
Gefðu fiskunum að borða.
Það ætti að flengja,
stelpur eins og þig.
Ekki koma nær.
Mig langar bara að leika
ég er þreytt á því að reika
og leita að morgundeginum
sem aldrei kemur.
Ekki koma nær.
Þið sitjið kannski á fremsta bekk
en þið fáið ekki að snerta.
Ekki koma nær
|
Streaming and Download help
If you like Kælan Mikla, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp